Í leikskólanum vinnum við árlega með skemmtilegt ræktunarverkefni sem tengist Grænfánanum. Öll börn setja niður kartöflu útsæði sem þau taka síðan upp í haust. Fyrst fá kartöflurnar að spíra inni hjá okkur og síðan munu börnin hjálpast að við að setja þær niður í gróðurkassana hér fyrir utan leikskólann. Með þessu fá börnin tækifæri til að fylgjast með ferlinu og læra um náttúruna og ræktun á skemmtilegan og lifandi hátt.

