Þriðjudaginn 10. nóvember síðast liðinn stóð foreldrafélagið fyrir barnavörumarkaði í Goðheimum. Foreldrum var þá frjálst að koma með inniföt, útiföt, skó, bækur og leikföng. Öllum foreldrum var velkomið að koma og nýta sér það sem var á markaðinum, óháð því hvort þeir hafi sjálfir komið með barnavörur.
Við getum saman spyrnt fótum við endalausri neysluhyggju og eflt hringrásarhagkerfið okkar, þetta er frábær vettvangur til að prófa slíkt umhverfi sem foreldrafélagið býður hér upp á ![]()
Foreldrafélagið var ánægt með þetta prufuverkefni og trúir því að svona viðburður styrkist bara með tímanum og eflist, og stefnt er á að halda annan slíkan á vorönn.
Frábært framtak hjá flotta og virka foreldrafélaginu okkar!!

