Leikskólinn Goðheimar er nýr sex deilda leikskóli sem er í byggingu við Engjaland 21 á Selfossi.  6. apríl 2021 voru opnaðar þrjár deildir sem tilheyra yngri börnum leikskólans ásamt bráðabirgða lóð, listasmiðju, sal og starfsmannaaðstöðuDeildirnar heita: Sól, Tungl og Stjarna. Sumarið 2021 verða kláraðar þrjár deildir til viðbótar sem tilheyra eldri barna deildum skólans. Deildarnar heita: Norðurljós, Regnbogi og Sólstafir. 

Markmið leikskólans Goðheima eru að stuðla að velferð og vellíðan nemenda, foreldra og starfsmanna í samvinnu við mannlíf, náttúru og umhverfi leikskólans. Leikskólinn hefur sótt um að vera skóli á grænni grein og heilsueflandi leikskóli. Grænfánaverkefnið er alþjóðlegt umhverfismenntarverkefni sem rekið er af Landvernd á Íslandi. Heilsueflandi leikskóli  er á vegum embættis landlæknis og er ætlað að styðja leikskóla í að vinna markvisst að heilsueflingu og gera hana að hluta af daglegu starfi leikskólans.  

Dagskipulag 

7:45 Leikskólinn opnar 

8:30  Morgunmatur  

9:00 – 11:20 Samvera, leikur og hópastarf 

11:20 -12:00 Hádegismatur og hvíld 

12:00 – 13:00 Hvíld og róleg stund í leikskólanum 

13:00 – 14:20 Hvíld og leikur 

14:20 – 15:00 Nónhressing  

15:00 – 16:15 Leikur  

16:30 Leikskólinn lokar