Almennar upplýsingar
Í öllum tilfellum er gert ráð fyrir því að veik börn séu heima. Miðað er við að þau börn sem koma í leikskólann geti tekið þátt í öllu daglegu starfi dagsins, bæði úti og inni. Veikist barn í leikskólanum er hringt í foreldra þeirra og þau beðin um að sækja barnið eins fljótt og kostur er.
Ekki er gert ráð fyrir að börn séu inni sem fyrirbyggjandi ráðstafanir.
Afmæli barnanna er stór dagur í lífi þeirra. Þann dag er afmælisbarnið sett í öndvegi og afmælissöngurinn sunginn fyrir afmælisbarnið.
Við biðjum foreldra um að nota ekki leikskólann til að bjóða í afmæli, hvorki skriflega né munnlega. Það getur valdið miklum leiða hjá þeim sem ekki fá boð að mæta.
Einnig geta boðskort glatast eða gleymst í leikskólanum þannig að afmælisboðið fer ekki heim með barninu. Vinsamlegast notið aðrar leiðir til að bjóða í afmæli.
Lyfjagjafir á leikskólatíma ættu í flestum tilfellum að vera óþarfar. Í undantekningartilfellum þarf að ræða við stjórnendur skólans.
Ef barn slasast í leikskólanum er hringt í foreldra þess og þeir beðnir um að fara með það á slysavarðstofuna. Hringt er í sjúkrabíl í þeim tilfellum sem það á við. Gerð er slysaskýrsla ef barn verður fyrir slysi innan skólans sem geymd er í leikskólanum. Gert er að minni sárum á staðnum. Allir nemendur sem eru í leikskólum Árborgar eru tryggðir meðan á dvöl þeirra stendur.
Þegar komið er með barnið í leikskólann og þegar að það er sótt er nauðsynlegt að láta kennara á deild barnsins vita. Minnt er sérstaklega á þetta ef komið er með barnið eða það sótt í útiveru. Af öryggisástæðum er nauðsynlegt að hringja og láta kennara vita ef einhverjir aðrir en foreldrar koma og sækja barnið í leikskólann. Ekki er æskilegt að börn yngri en 12 ára sæki barnið í leikskólann. Kennarar skrá rafrænt hvenær barnið mætir og hvenær það er sótt. Þessi skráning er mikilvæg til að tryggja öryggi hvers barns í leikskólanum.
Hliðin verða að vera lokuð á öllum tímum, bæði þegar að börnin eru úti og inni. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að láta þá sem koma og sækja börnin í leikskólann vita af þessu. Þetta er mjög mikilvægt atriði. Mörgum börnum finnst spennandi að fá að opna hliðin fyrir mömmu og pabba þegar komið er að sækja þau. Þau eru stundum of dugleg við þessa iðju sína og hafa opnað hliðin áður en foreldrar eru komnir að lóðinni eða þegar verið er að fara í gönguferðir. Leikskólinn biður foreldra um samstarf hvað þetta varðar og að reglan sé sú að fullorðnir opna hliðin, ekki börnin.