Útskrift elstu barnanna í Goðheimum

Þann 8. júní síðastliðinn fór fram útskriftarathöfn elstu barna leikskólans Goðheima. Athöfnin fór fram í Sunnulækjaskóla þar sem 34 börn útskrifuðust og gekk athöfnin einstaklega vel í hlýlegu og hátíðlegu andrúmslofti.
Börnin buðu fjölskyldum sínum og öðrum nánum aðstandendum til að vera viðstödd þennan mikilvæga áfanga. Við athöfnina kynntu börnin sig hvert af öðru í hljóðnema og sýndu mikið sjálfstraust og hugrekki. Guðný Birgisdóttir lék undir á píanó og börnin fluttu þrjú lög.
Eitt laganna fjallaði um umhverfissáttmálann, en á síðasta leikskólaári sínu sátu öll börnin í umhverfisnefnd leikskólans. Þar hafa þau tekið virkan þátt í umhverfisstarfi, meðal annars með því að tína rusl, flokka úrgang og huga að umhverfinu á margvíslegan hátt.
Auk þess sungu börnin lagið Óskasteinar og í lok athafnarinnar fluttu þau Goðheimalagið. Athöfninni lauk svo með skemmtilegum hætti þegar börnin köstuðu útskriftarhöttunum sínum, sem þau höfðu sjálf föndrað, hátt upp í loftið.
Þetta var einstaklega ánægjuleg og eftirminnileg stund fyrir börnin, fjölskyldur þeirra og starfsfólk leikskólans. Við færum Foreldrafélagi Goðheima innilegar þakkir fyrir fallegar gjafir til barnanna í tilefni dagsins. Jafnframt þökkum við útskriftarbörnunum og foreldrum þeirra kærlega fyrir gott samstarf, traust og samveru á liðnum árum. Við óskum öllum útskriftarbörnunum farsældar og velgengni á nýjum vettvangi.