„Lífbreytileiki – Hvað felur sig í jörðinni?“

Nú eru allar deildir leikskólans að vinna með verkefnið „Lífbreytileiki – Hvað felur sig í jörðinni?“ þar sem börnin fá tækifæri til að rannsaka og kynnast þeim fjölbreytta heimi sem leynist undir fótum okkar. Með vettvangsferðum, leik, sköpun og könnun skoðum við jarðveginn og þær lífverur sem þar búa svo sem ánamaðka, skordýr og aðrar smáar lífverur. Markmið verkefnisins er að efla skilning barnanna á lífbreytileika og mikilvægi náttúrunnar, ásamt því að vekja forvitni, virðingu og umhyggju fyrir umhverfinu. Verkefnið er hluti af daglegu starfi okkar og styður við markmið Grænfánans um sjálfbærni og náttúruvernd.